7.2.2007 | 18:23
Er þetta ekki alveg dæmigert fyrir skrifstofublókir ???
Rakst á miða sem á stóð... Vinnuaðstæður:
Starfsmaður þarf stundum að vinna utandyra og hann vinnur reglulega við óþægilegar, ógeðfeldar eða hættulegar vinnuaðstæður í allt að helming vinnutímans. Starfsmaður verður stundum fyrir móðgunum, svívirðingum, yfirgangi, árásum eða andfélagslegri hegðun frá notendum þjónustunnar. Slíkt áreiti telst þá ekki alvarlegt eða stendur að jafnaði stutt yfir (sem sagt bíddu bara meðan að þú ert lamin í spað þetta tekur ekki nema svona ca. 3 mín). Ekki er ætlast til þess að starfsmaður bregðist við.

ok ég átti nú helst von á að hér væri verið að lýsa vinnuaðstæðum fangavarða á Litlahrauni. Ó nei Ó nei svo gott er það nú ekki, hér er um að ræða hluta af starfslýsingu Stuðningsfulltrúa í skólum landsins og þetta plagg er gefið út af Sambandi sveitarfélaga !!! halllóóó er einhver heima ??? nei ég hélt ekki !!!
ég rak augun sérstaklega í lýsingu á aðstæðum utan dyra... "þarf stundum að vinna utandyra og hann vinnur reglulega við óþægilegar, ógeðfeldar eða hætturlegar vinnuaðstæður..." Krakkar mínir þið gerið ykkur grein fyrir að þið eruð að lýsa skólalóðum landsins er það ekki ??? Það er ljúft að sjá fólk á borð við Kristján Þór Júlíusson, Lúðvík Geirsson, Ragnheiði Ríkharðsdóttur og fleiri í þeim dúr standa í forsvari fyrir þessa vitleysu. Satt best að segja held ég að þetta lið sem hangir inni á skrifstofum alla daga ætti að rífa höfuðið út úr rassgötunum á sér og pæla aðeins í því hvað er að gerast í kringum það. Helstu vandamál samfélagsins í dag eru rótleysi, agaleysi og önnur andfélagsleg hegðun barna og unglinga. En þetta stendur víst ekki lengi yfir !!!
Kveðja,
Hauðarson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Kristinn Guðmundsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 1277
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


